Í góða veðrinu í gærkvöldi fórum við Erla á línuskauta. Við skæddum okkur fyrir utan húsið mitt og lögðum í hann, en eðlilega fórum við hægt yfir á meðan við fundum jafnvægið og vöndumst skautunum eftir langt skautahlé. Reyndar fórum við svo hægt að ungur maður labbaði framúr okkur.
Labbaði.
Við fórum hraðar yfir þegar fjær dró og sjálfsöryggið jókst. Enduðum í ísbúðinni og nutum blíðunnar í gærkvöldi, sem var kærkomin eftir ótíðina undanfarnar vikur.
Þú verður nú að láta vita með fyrirvara áður en svona er gert svo þú getir nú haft áhorfendaskara ;-)
Miss U
Posted by: Ásdís | 8. júní 2007 at 14:48