Á góðviðrisdögum upplifi ég mig eins og ég þurfi að uppfylla vissar borgaralegar skyldur. Þannig er það skylda hvers Íslendings að gera a.m.k. tvennt af eftirtöldu hvern þann dag sem sólin skín; sitja á eða við Austurvöll, fara í sund, grilla, fá sér ís, fara á línuskauta, hjóla, skokka eða njóta kvöldsólarinnar í göngutúr meðfram sjónum. Mikilvægi þess síðastalda eykst ef þú ert ástfangin(n).
Þannig einkennast góðviðrisdagar á Íslandi af örvæntingu viðstaddra. Sem þjóð reynum við að gera á einum degi það sem aðrar gera á fjórum mánuðum - því kannski kemur ekki annar svona góður dagur í bráð.
„Það er greinilega grilldagur í dag“ sagði geðþekki pilturinn á kassanum í Melabúðinni í gær. Ég jánkaði því, og bætti við að það væri eins gott að nota tækifærið. Sem var svo alveg rétt - í dag er skýjað og á morgun er spáð rigningu.
En þessir fáu dagar eru góðir á meðan þeir eru. Það er bara vonandi að sumarið lendi næst á helgi.
Recent Comments