Í gær skráði ég mig inn á bloggið í fyrsta skipti í langan tíma, í þeim tilgangi að loka síðunni. Ég vildi samt varðveita textann og varði því smá tíma í að koma skikki á færslurnar. Í leiðinni las ég mikið af þeim og fannst svo gaman að lesa þetta og rifja upp "gömlu góðu tímana" að ég tímdi ekki að loka síðunni og hætta alveg.
Frásagnir halda því e.t.v. áfram, á eigin forsendum eins og áður en máski eigingjarnari.
- - - - -
Annars var ég að koma heim af Sjávarkjallaranum. Maður lifandi hvað þetta er brilljant staður! Við fengum okkur öll "Exotic surprise" og hver dýrindis rétturinn rak annan. Gott vín, fyrirmyndar þjónusta og frábær matur. Finnst samt svolítið skrítið að vera svona tipsí á þriðjudagskvöldi... og á leiðinni á fund kl. 9.30 í fyrramálið. :-O
Recent Comments