Í gær skráði ég mig inn á bloggið í fyrsta skipti í langan tíma, í þeim tilgangi að loka síðunni. Ég vildi samt varðveita textann og varði því smá tíma í að koma skikki á færslurnar. Í leiðinni las ég mikið af þeim og fannst svo gaman að lesa þetta og rifja upp "gömlu góðu tímana" að ég tímdi ekki að loka síðunni og hætta alveg.
Frásagnir halda því e.t.v. áfram, á eigin forsendum eins og áður en máski eigingjarnari.
- - - - -
Annars var ég að koma heim af Sjávarkjallaranum. Maður lifandi hvað þetta er brilljant staður! Við fengum okkur öll "Exotic surprise" og hver dýrindis rétturinn rak annan. Gott vín, fyrirmyndar þjónusta og frábær matur. Finnst samt svolítið skrítið að vera svona tipsí á þriðjudagskvöldi... og á leiðinni á fund kl. 9.30 í fyrramálið. :-O
Heyr heyr :) gaman að sjá færsu hjá þér annars lagið :D
Posted by: Bjarni | 30. maí 2007 at 09:41
Jibbí!
Posted by: Hrefna | 31. maí 2007 at 15:01
og koma svo með hlaupalýsingar ;)
Posted by: Halla | 4. júní 2007 at 14:53
Hæ hæ, rakst á þetta því ég var að double checka upplýsingar um þig í bæklingnum okkar. Takk fyrir þrælfínt kvöld þarna í Sjávarkjallaranum... var alveg búin að gleyma hvað maturinn var OFBOÐSLEGA góður og félagsskapurinn ekki síðri! Bkv, Kolbrún hjá St.mennt.
Posted by: Kolbrún | 22. ágúst 2007 at 09:32