Annars fór ég á X-Factor á föstudaginn með Halldóri Ívari, 8 ára sérfræðingi um keppnina og keppendur. Ég hef reyndar ekki séð nema einn þátt og hafði takmarkað gaman að, en það var annar þáttur ef ég man rétt og þetta hefur allt slípast til.
Það var gaman að sjá hvað gerist áður en myndavélin lendir á kynnum og keppendum, og ég verð að segja að Halla kom mér skemmtilega á óvart í salnum. Hún hélt fjörinu uppi, hafði lag á stærsta markhópnum og laðaði fram hlátur með hæfilegum prakkaraskap.
Keppendurnir voru upp og ofan en mér fannst Jógvan standa sig best (a.k.a. Færeyski folinn). Hann náði salnum alveg og undir lok lagsins rankaði ég við mér þar sem ég hafði hallað mér fram í sætinu og hallaði höfðinu undir flatt. Kannski eins gott að ég var úr sjónlínu myndavélarinnar!
Eftir keppnina hitti Halldór Ívar hana Guðbjörgu, sem er hans uppáhald. Hún tók vel í kveðjuna og tók utan um kappann, sem fyrir vikið brosti út að eyrum alla leiðina heim. „Nú hafa unglingsstelpurnar engan til að halda með fyrst Gylfi er dottinn út“ var hans mat á úrslitunum, því að sögn finnst unglingastelpum hann svo sætur. Aðspurður hvort þær sneru sér ekki að Jógvan í staðinn var svarið nei - „því hann er svo gamall“.
Recent Comments