OK, ég viðurkenni það. Ég er að verða... fullorðinn. Merki þess er tilhlökkunin yfir nýju þvottavélinni minni.
Sú gamla, sem var að verða 20 ára og ég fékk í meðgjöf þegar ég flutti, gaf upp öndina um helgina. Ég brunaði í Elko á mánudaginn og festi kaup á nútímagræju með 270 þúsund stillingum, t.d. fyrir skyrtur með easy-ironing hnapp, fyrir viðkvæmt og very stained. Ég get m.a.s. still vinduhraðann!
Ég er viss um að við Margarita verðum mjög hamingjusöm saman.
- - - - -
Sáuð þið grein Guðmundar Þormarssonar, fyrrverandi bónda, í Velvakanda í gær? Stórkostleg. Ef Randver Þorláksson er ímynd íslenskrar karlmennsku eru það góðar fréttir fyrir mig. Nema ef ske kynni að þarna sé grín á ferð.
- - - - -
Mamma mín á afmæli dag og af því tilefni bauð ég henni í mat. Fyllti kjúklingabringur með mexíkóosti og vafði inn í beikon og eldaði í ofni. Meðlæti voru ofnbakaðar kartöflur & sætar kartöflur með timjan, rauðlauk og svörtum pipar ásamt fersku salati. Ísbúð Vesturbæjar skaffaði eftirréttinn.
Í gær bjuggum við hjónin til jólakonfektið. Þarna er ég að sprauta þeyttum eggjahvítum og sykri ofan á marensbotna, agalega pró. Við gerðum líka Mozartkúlur en höfðum ekki tíma í karamellur og kókoseitthvað, því við a) bjuggum til tvær súkkulaðikökur fyrir afmælisboð dagsins og b) fórum á tónleika með Langholtinu.
Recent Comments