Rosalega er ég orðinn latur við þetta blogg... Samt er ég ekki tilbúinn að sleppa því alveg. En ég hef sossum afsökun fyrir bloggföllum undanfarið.
Ég hætti (loksins) hjá SFR, en síðasti dagurinn var 24. maí. Var kvaddur með stórri súkkulaðiköku og gjöf frá samstarfsfélögum í húsinu öllu. Sama kvöld hélt ÁDÍ vorfögnuð í Flugröst, þó veðrið hafi ekki beint verið vorlegt. Uppstigningardagur bar nafn með rentu, því það var kraftaverki líkast þegar ég reis upp úr sófanum og gat staðið uppréttur.
Svo byrjaði ég á nýja staðnum daginn eftir uppstigningardag, 26. maí. Fékk ljómandi fína skrifstofu, vinnufélagar virðast góðir og verkefnin skemmtileg. All's good.
En stoppið á nýja staðnum verður ekki mjög langt til að byrja með, því ég er að fara í frí frá og með miðvikudeginum og verð í tæpar 3 vikur. Það er ekki slæmt að verja tveimur þeirra hér.
Recent Comments