Í nótt verður ansi talnafagurt augnablik á klukkunni, 01:02:03 þann 04.05.06.
Það eru þúsund hundrað ár í að samskonar talnaruna endurtaki sig á klukkunni, ca. 400 kynslóðir. Ég held reyndar að það sé annað svipað augnablik á árinu, en man ekki hvaða dag né klukkan hvað [ok, I'm not obsessed en það er 06.06.06 kl. 06:06:06].
Reyndar upplifðum við annan sjaldgæfan atburð fyrir 6 árum, sem var 29. febrúar 2000. Sá hlaupársdagur kemur aðeins á 400 ára fresti, því aldamótaár er ekki hlaupár nema númer aldarinnar gangi upp í 4 líka.
Talandi um tíma, þá eru sléttar fimm vikur í sumarfrí og ferðalagið góða. Ég þarf reyndar að skipta um vinnu fyrst...
Recent Comments