Ég var búinn að gleyma hvað Fagurt er í fjörðum er fallegt lag. Ljóðið er ekki síður fallegt.
Fagurt er í Fjörðum
þá Frelsarinn gefur veðrið blítt,
heyið grænt í görðum,
grös og heilagfiskið nýtt,
en er vetur að oss gerir sveigja
veit ég enga verri sveit,
um veraldarreit,
menn og dýr þá deyja.
Já, þetta lag var mjög fallegt í flutningi okkar í HK, fannst þér ekki? Ef mér skjátlast ekki, þá tel ég að þetta hafi einnig verið á efnisskránni hjá hinni vinsælu gjörningshljómsveit "Faðir minn" í Skálholti um árið. ;o)
Posted by: Guðjón E. | 13. september 2005 at 10:20
Þetta vekur einmitt upp góðar HK minningar! :)
Posted by: SverrirJ | 13. september 2005 at 16:40
Heill og sæll.
Hvaða lag er sungið við ljóð Látra-Bjargar um Fjörður?
Kveðja
Gísli Sigurgeirson
Posted by: Gísli Sigurgeirsson | 29. júlí 2009 at 11:10