Fyrst kom TaB stelpan. Svo var það Toto maðurinn. Nú er það sánaparið. Mér var bent á þessa auglýsingu, sem er ekki djók. REALLY!
Hjólhýsagarðurinn við Laugarvatn er nær en mig grunaði.
Fyrst kom TaB stelpan. Svo var það Toto maðurinn. Nú er það sánaparið. Mér var bent á þessa auglýsingu, sem er ekki djók. REALLY!
Hjólhýsagarðurinn við Laugarvatn er nær en mig grunaði.
Posted on 12. júlí 2007 at 21:05 | Permalink | Comments (1)
Hann Bárður minn er ekki stór bíll, hann er í ca. næsta stærðarflokki fyrir ofan Smart bílana. Þess vegna skil ég illa af hverju fuglaskítur lendir gjarnan beint ofan á honum Bárði mínum, miðað við þetta litla pláss sem hann tekur. Algjörlega óþolandi þegar maður er nýkominn í gegnum bílaþvottastöðina.
Posted on 2. júlí 2007 at 22:42 | Permalink | Comments (0)
Á góðviðrisdögum upplifi ég mig eins og ég þurfi að uppfylla vissar borgaralegar skyldur. Þannig er það skylda hvers Íslendings að gera a.m.k. tvennt af eftirtöldu hvern þann dag sem sólin skín; sitja á eða við Austurvöll, fara í sund, grilla, fá sér ís, fara á línuskauta, hjóla, skokka eða njóta kvöldsólarinnar í göngutúr meðfram sjónum. Mikilvægi þess síðastalda eykst ef þú ert ástfangin(n).
Þannig einkennast góðviðrisdagar á Íslandi af örvæntingu viðstaddra. Sem þjóð reynum við að gera á einum degi það sem aðrar gera á fjórum mánuðum - því kannski kemur ekki annar svona góður dagur í bráð.
„Það er greinilega grilldagur í dag“ sagði geðþekki pilturinn á kassanum í Melabúðinni í gær. Ég jánkaði því, og bætti við að það væri eins gott að nota tækifærið. Sem var svo alveg rétt - í dag er skýjað og á morgun er spáð rigningu.
En þessir fáu dagar eru góðir á meðan þeir eru. Það er bara vonandi að sumarið lendi næst á helgi.
Posted on 13. júní 2007 at 13:14 | Permalink | Comments (2)
Í góða veðrinu í gærkvöldi fórum við Erla á línuskauta. Við skæddum okkur fyrir utan húsið mitt og lögðum í hann, en eðlilega fórum við hægt yfir á meðan við fundum jafnvægið og vöndumst skautunum eftir langt skautahlé. Reyndar fórum við svo hægt að ungur maður labbaði framúr okkur.
Labbaði.
Við fórum hraðar yfir þegar fjær dró og sjálfsöryggið jókst. Enduðum í ísbúðinni og nutum blíðunnar í gærkvöldi, sem var kærkomin eftir ótíðina undanfarnar vikur.
Posted on 8. júní 2007 at 08:33 | Permalink | Comments (1)
Frekar fyndið atriði, sem var reyndar eytt, úr Knocked Up (með Izzy úr Grey's Anatomy).
"I'm a realist man. I liked to see real shit going down"
Posted on 2. júní 2007 at 09:56 | Permalink | Comments (0)
Í gær skráði ég mig inn á bloggið í fyrsta skipti í langan tíma, í þeim tilgangi að loka síðunni. Ég vildi samt varðveita textann og varði því smá tíma í að koma skikki á færslurnar. Í leiðinni las ég mikið af þeim og fannst svo gaman að lesa þetta og rifja upp "gömlu góðu tímana" að ég tímdi ekki að loka síðunni og hætta alveg.
Frásagnir halda því e.t.v. áfram, á eigin forsendum eins og áður en máski eigingjarnari.
- - - - -
Annars var ég að koma heim af Sjávarkjallaranum. Maður lifandi hvað þetta er brilljant staður! Við fengum okkur öll "Exotic surprise" og hver dýrindis rétturinn rak annan. Gott vín, fyrirmyndar þjónusta og frábær matur. Finnst samt svolítið skrítið að vera svona tipsí á þriðjudagskvöldi... og á leiðinni á fund kl. 9.30 í fyrramálið. :-O
Posted on 29. maí 2007 at 23:29 | Permalink | Comments (4)
Annars fór ég á X-Factor á föstudaginn með Halldóri Ívari, 8 ára sérfræðingi um keppnina og keppendur. Ég hef reyndar ekki séð nema einn þátt og hafði takmarkað gaman að, en það var annar þáttur ef ég man rétt og þetta hefur allt slípast til.
Það var gaman að sjá hvað gerist áður en myndavélin lendir á kynnum og keppendum, og ég verð að segja að Halla kom mér skemmtilega á óvart í salnum. Hún hélt fjörinu uppi, hafði lag á stærsta markhópnum og laðaði fram hlátur með hæfilegum prakkaraskap.
Keppendurnir voru upp og ofan en mér fannst Jógvan standa sig best (a.k.a. Færeyski folinn). Hann náði salnum alveg og undir lok lagsins rankaði ég við mér þar sem ég hafði hallað mér fram í sætinu og hallaði höfðinu undir flatt. Kannski eins gott að ég var úr sjónlínu myndavélarinnar!
Eftir keppnina hitti Halldór Ívar hana Guðbjörgu, sem er hans uppáhald. Hún tók vel í kveðjuna og tók utan um kappann, sem fyrir vikið brosti út að eyrum alla leiðina heim. „Nú hafa unglingsstelpurnar engan til að halda með fyrst Gylfi er dottinn út“ var hans mat á úrslitunum, því að sögn finnst unglingastelpum hann svo sætur. Aðspurður hvort þær sneru sér ekki að Jógvan í staðinn var svarið nei - „því hann er svo gamall“.
Posted on 13. mars 2007 at 09:01 | Permalink | Comments (0)
„Út með það. Reyndu að tjá þig um það sem þér liggur á hjarta. Stundum ertu að vernda aðra frá því sem þér finnst, en fólk er ekki eins viðkvæmt og þú heldur, og getur vel tekið þínum skoðunum.“ [src]
Þetta eru vísindi - Mogginn lýgur aldrei.
Posted on 12. mars 2007 at 10:33 | Permalink | Comments (0)
Það bendir margt til þess að ég hafi verið bjarndýr í fyrra lífi. Mér verður einstaklega lítið úr verki yfir háveturinn þegar birtunnar nýtur ekki. Ég sinni helstu verkum og skyldum, en frumkvæðið er ekki til staðar. Leggst í hýði, geri lítið og bíð eftir vorinu.
Nú fer að vora. Eins langt og það nær því strangt til tekið vorar ekki á Íslandi, a.m.k. ekki að ráði og því undir hverjum og einum komið „að vora“ sjálfur. Vorið kemur innan frá og út, ekki utan frá og inn. Ég áttaði mig á þessu fyrir tveimur til þremur árum og fyrir vikið voru vorin lengri og skemmtilegri, og svokallað sumar nýtur góðs af því líka.
Nú draga kannski einhverjir þá ályktun að ég sé með skammdegisþunglyndi. Svo því sé svarað þá átti það við áður fyrr og var ekki bara tengt skammdeginu, en eftir að ég fór að búa til mitt eigið vor þá skrifa ég ekki undir skammdegisþunglyndi. Líklegri útskýring er sú að ég er í æðislega góðum tengslum við náttúruna og það sé henni - náttúrunni altso - eðlilegt að fara sér hægar í skammdeginu. Ég er semsagt náttúrubarn.
Nú vorar - skv. ákvörðun - og ég finn að ég eykst að krafti og nennu á hverjum degi. Sem er gott.
Posted on 4. mars 2007 at 21:35 | Permalink | Comments (4)
Gunna Finn og Stefán eru búin að kaupa sér íbúð á Bergstaðastræti. Það er full ástæða til að blogga um það og óska þeim til hamingju :-)
Posted on 4. mars 2007 at 01:01 | Permalink | Comments (2)
Recent Comments